Sony Xperia Z5 Premium - Tekið á móti símtölum

background image

Tekið á móti símtölum

Ef þú tekur við símtali þegar tækið er í svefnstillingu eða skjárinn er læstur opnar

símaforritið í fullu skjásniði. Ef þú tekur við símtali þegar kveikt er á skjánum er það birt á

skjánum sem viðvörunartilkynningu, það er, í litlum glugga sem flýtur efst á þeim skjá sem

er opinn. Þegar svona tilkynning kemur getur þú valið að svara símtalinu og opna

símaforritaskjáinn eða þú getur hafnað símtalinu og verið á núverandi skjá.

Símtali svarað þegar skjárinn er óvirkur

Dragðu til hægri.

Símtal svarað þegar skjárinn er opinn

Í viðvörunartilkynningunni sem birtist efst á skjánum pikkarðu á

SVARA.

Í staðinn fyrir að svara símtalinu getur þú farið í aðal símaforritaskjáinn með því að pikka á efri

hluta viðvörunartilkynningarglugganum. Við það að nota þessa aðferð færu fleiri valkosti til að

vinna með símtalið. Til dæmis, getur þú ákveðið að hafa símtalið með skilaboði eða

áframsenda það í símsvarann.

Símtali hafnað þegar skjárinn er óvirkur

Dragðu til vinstri.

Símtali hafnað þegar skjárinn er virkur

Þegar símtal berst pikkarðu á

HAFNA í tilkynningunni sem birtist efst á skjánum.

Í staðinn fyrir að hafna símtalinu geturðu farið á aðalforritaskjá símans með því að pikka á

tilkynningargluggann. Með því að nota þessa aðferð færðu fleiri valkosti til að vinna með

símtalið. Það er t.d. hægt að hafna símtalinu með skilaboðum eða framsenda það í

símsvarann.

Slökkt á hringitóni fyrir móttekið símtal

Þegar þú færð símtal, ýtirðu á hljóðstyrkstakkann.

Símsvarinn notaður

Þú getur notað símsvaraforrit tækisins til að svara í símann þegar þú ert upptekin(n) eða

missir af símtali. Þú getur kveikt á sjálfvirkri símsvörun og ákvarðað hversu margar

sekúndur eigi að bíða áður en símtali er svarað sjálfkrafa. Þú getur einnig sent símtöl

handvirkt í símsvarann þegar þú ert of upptekin(n) til að svara. Þú getur líka nálgast

skilaboð sem skilin eru eftir á símsvaranum beint úr tækinu.

Áður en símsvarinn er notaður þarftu að taka upp kveðju.

73

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Kveðja tekin upp fyrir símsvara

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Símtal > Xperia™ símsvari > Kveðjur.

3

Pikkaðu á

Taka upp nýja kveðju og fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.

Kveikt eða slökkt á sjálfvirkri svörun

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Símtal > Xperia™ símsvari.

3

Pikkaðu á

Símsvari sleðann.

Seinkun á sjálfvirkri símsvörun stillt

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Símtal > Xperia™ símsvari.

3

Pikkaðu á

Svara eftir.

4

Breyttu tímanum með því að fletta upp og niður.

5

Pikkaðu á

Lokið.

Símtal áframsent í símsvara

Þegar símtal berst pikkarðu á

SVARVALKOSTIR og velur svo Hafna með

símsvara.

Þegar símtal berst geturðu líka beðið þar til fyrirfram ákveðinn tími er liðinn svo símsvarinn taki

sjálfkrafa við símtalinu.

Hlustað á skilaboð á símsvara

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Símtal > Xperia™ símsvari > Skilaboð.

3

Veldu talhólfsskilaboðin sem þú vilt hlusta á.

Einnig er hægt að hlusta á skilaboð á símsvaranum beint úr símatalaskránni með því að pikka

á .

Símtali hafnað með textaskilaboðum

Þú getur hafnað símtali með textaskilaboðum. Þegar þú hafnar símtali með skilaboðum

eru þau send sjálfkrafa til hringjandans og vistuð í samtalssögunni við tengiliðinn.
Þú getur valið úr fjölda fyrirfram ákveðinna skilaboða í tækinu eða búið til eigin skilaboð.

Þú getur einnig búið til sérsniðin skilaboð með því að breyta þeim sem fyrir eru.

Símtali hafnað með textaskilaboðum þegar slökkt er á skjánum

1

Þegar símtal berst skaltu pikka á

SVARVALKOSTIR.

2

Veldu forstillt skilaboð eða pikkaðu á

Skrifa ný skilaboð.

Símtali hafnað með textaskilaboðum þegar kveikt er á skjánum

1

Þegar símtal berst pikkarðu á efri hluta tilkynningagluggans þar sem símanúmer

eða nafn tengiliðar birtist.

2

Pikkaðu á

SVARVALKOSTIR.

3

Veldu forstillt skilaboð eða pikkaðu á

Skrifa ný skilaboð.

Öðru símtali hafnað með textaskilaboðum

1

Þegar þú heyrir endurtekið píp meðan á símtali stendur skaltu pikka á

SVARVALKOSTIR.

2

Veldu forstillt skilaboð eða pikkaðu á

Skrifa ný skilaboð.

Textaskilaboðum sem notuð eru til að hafna símtali breytt

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Símtal > Hafna símtali með skilaboðum.

3

Pikkaðu á skilaboðin sem þú vilt breyta og breyttu því sem þarf.

4

Pikkaðu á

Í lagi.

74

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.